Röfl |
miðvikudagur, 24. júlí 2002
Allt að gerast
indridi
10:57h
Nú er allt að gerast á netinu. Af öllum mögulegum og (þó aðallega) ómögulegum mönnum er Pawel kominn með heimasíðu og farinn að blogga um pendúla o.fl. eðlisfræðitengd hugðarefni sín af miklu kappi. Að auki ber að nefna hinn ágæta Hafó formann sem sett hefur upp mikla skrautsýningu á víðavangi internetsins. Þess má til gamans geta að í gær uppgötvaði ég að koffín ER örvandi lyf. Fór á fund, drakk þar mikið af kaffi yfir merkilegum vangaveltum. Að því loknu keyrði ég heim en ætlaði að koma við á vídeoleigunni í leiðinni að skila spólum. Keyrði rakleiðis heim, en sá þá spólurnar í sætinu við hliðina á mér og lagði af stað í Bónusvídeo. Keyrði rakleiðis í 11-11 (var næstum búinn að keyra niður þokkadís eina rosalega) og var stiginn út úr bílnum þegar ég uppgötvaði að ég ætlaði alls ekki þangað. Settist inn í bíl í þriðja skiptið á 5 mínútum án þess að hafa náð á leiðarenda, taldi upp að tíu og keyrði rólega í Bónusvídeó, rölti pollrólegur þangað inn og rétti spólurnar yfir borðið. Kaffi er böl Indriði ... Link |
tengdur í 8224 daga
Síðast uppfært: 21.5.2002, 12:07 Youre not logged in ... Login
|